Efni

Myrkrið brann, í nauðum statt, landið marflatt lá.
Vonin fjarlæg, kuldinn sár, á náttmyrkranna slóð.

En dagar oks og þungra kvaða taldir eru senn.
Þjóðin sú sér mikið ljós, Drottinn sjálfur rís.

Mikið ljós, brýst í gegn.
Yfir ísilagða jörð, brýst það yfir bjart og skært.
Mikið ljós, gleðin rís.
Gegnum náttmyrkranna tíð, flæðir von og fyllir sál, mikið ljós.

Fleygjum vopnum, slökkvum hatur, vekjum kærleikann.
Barn er fætt, sonur gefinn, friðarhöfðinginn.

Nafn hans mikið, illskan fjarlægð, eilífð mörkuð til.
Ákefð Drottins gefst ekki upp, seinasta á orð.

1Tím 2:5-6

Það er einn Guð og aðeins einn milligöngumaður milli Guðs og okkar — Jesús, sem fórnaði sjálfum sér í skiptum fyrir alla sem eru haldnir syndinni, til að frelsa þá alla. Þetta er boðskapurinn sem Guð gaf heiminum á réttum tíma.

https://docs.google.com/presentation/d/1gZ43HWzOQD4mp650RPOAdyQSgSq5ba6_Dk2Pl9Le3k4/edit?usp=sharing

Faðir á himnum hve við elskum þig.
Við upphefjum þitt nafn á jörð.
Megi ríki þitt koma er við lofum þig
Og sem lýður þinn við kunngjörum þín verk.

Blessað sé þitt nafn Guð hinn hæsti,
Sem varst og ert og kemur senn.
Blessað sé þitt nafn Guð hinn hæsti
Um eilífð ríkir þú

https://meet.google.com/ood-koeu-oaa

https://docs.google.com/presentation/d/1bJiMv2F_8CkJkwCgNkQ4qeBbGcDecH5fCSgGQzTFtAE/edit?usp=sharing